Ásgeir Trausti

Letra Þennan dag Ásgeir Trausti

1.069

Valorar esta letra:
'calificación: 0.0/10 - Votos en total: 0

Þennan dag


Þennan dag

Þú varst hjartablóm og ljóðadís og lag
í leiftursýn mér tókst að þekkja þig
þennan dag
og gæfan tók að gæla ögn við mig.

Svo leið tíminn hratt með lífsins dans og brag
mér lærðist tafarlaust að þekkja það
þennan dag
að gæfan verður seint á vísum stað.

Enn ég hugs' um ástina og glaðan hag
og einnig þína mynd og þarflaust hik
þennan dag
hið eina litla, litla augnablik.

Þú varst hjartablóm og ljóðadís og lag
mér lærðist tafarlaust að þekkja það
þennan dag
að gæfan verður seint á vísum stað
að gæfan verður seint á vísum stað
að gæfan verður seint á vísum stað.

Gracias porque corrigió esta letra
 

El texto musical ÞENNAN DAG de ÁSGEIR TRAUSTI también está presente en el álbum Dýrð í dauðaþögn (2013)

Leave a comment to the song

Artistas relacionados